Greinahöfundur:
Guðmundur Daníelsson
Hér fara á eftir
þættir úr endurminningum, sem frú Kristín Jónsdóttir frá Gemlufalli í Dýrafirði
rifjaði upp að ósk minni og leyfði mér að hafa eftir sér á útmánuðum 1982. Í fyrstu lotunni komumst við ekki lengra en
fram á barnaskólaárin heima í sveitinni hennar, Mýrarhreppi. Hún á eftir að trúlofast og giftast séra
Eiríki J. Eiríkssyni, margfaldlega þjóðkunnum manni, verða húsfreyja á stærsta
heimili á Vestfjörðum, Núpsskóla, í aldarfjórðung, eignast 11 börn, þar eftir
að gerast húsfreyja á mesta helgi- og sögustað Íslands, Þingvöllum við Öxará,
og loks fylgja manni sínum niður í Flóann, þar sem heitir á Selfossi, og verða
þar nágrannakona mín við Árveginn.
Við skulum heyra
hvað hún hefur að segja
FORELDRAR, AFAR OG ÖMMUR.
Foreldrar mínir
voru báðir fæddir í Þingeyrarhreppi í Dýrafirði. Faðir minn hét Jón Ólafsson frá Hólum, faðir
hans var Ólafur Guðmundsson og móðirin Sigríður Kristín Jónsdóttir
ljósmóðir. Foreldrar föður míns bjuggu
lengst af búskapartíð sinni í Hólum, en fluttu til Þingeyrar þegar heilsu
þeirra fór að hnigna og amma mín var hætt að geta sinnt ljósmóðurstörfum. Eftir það bjuggu þau á Þingeyri í þurrabúð og
með þeim synir þeirra, Jón faðir minn og Guðmundur, en Lilja systir bræðranna
hefur þá líklega verið flutt til Reykjavíkur.
Hún fór þangað ung og andaðist þar um þrítugt.
Móðir mín var
fædd á Brekku í Brekkudal, dóttir Guðmundar Jenssonar og Jónínu Jónsdóttur, sem
voru þar búandi allan sinn aldur og áttu tíu börn. Í Brekkudalnum voru fjórir bæir. Milli Þingeyrar og Brekkudals er alflíðandi
háls. Um hann var greið gata og liggur
sú leið allt til Arnarfjarðar. Af
hálsinum er fallegt að horfa yfir frjósamt dalverpið undirniðri. Eftir því líðast áin tær, undan fjöllum, út í
haf.
Meðan amma og afi
lifðu fórum við systkinin stundum í heimsókn til þeirra að Brekku. Þarna var heilmikið land og það var svo
blómlegt þarna uppi í dalnum. Enda
bjuggu þau afi og amma góðu búi og komu með sóma upp sínum tíu börnum, sem öll
lifðu. Afi minn var heldur ekki aðeins
bóndi, hann var sjómaður líka, ég held skipstjóri, að minnsta kosti stýrimaður,
á skútum frá Þingeyri, og þótti ágætur skipstjórnarmaður.
Þarna á Brekku
fæddist Ágústa móðir mín, foreldrar mínir báðir eru því fæddir og aldir upp í
Þingeyrarhreppi. Pabbi og mamma giftust
áríð 1916 og keyptu þá jörðina Minna-Garð í Mýrarhreppi og fluttust
þangað. Foreldrar pabba, þau Kristín
amma og Ólafur, fluttust með þeim að Minna-Garði, þar að auki dóttir Lilju
Ólafsdóttur, Ragnheiður að nafni, þá fjögra eða fimm ára gömul. Hún ólst svo upp hjá okkur. Minni-Garður var lítil jörð, en lá að annarri
stærri, sem hét Meiri-Garður. Þessir
bæir eru fyrir utan kirkjustaðinn Mýrar, milli Mýra og Núps, til hægri handar
þegar farið er út sveitina við norðanverðan Dýrafjörð.
Þarna bjuggu
foreldrar mínir í þrjú ár, til 1920. Þá
flytjast þau að Gemlufalli, sem er innar í sveitinni og beint á móti
Þingeyri. Ég fæddist í Minna-garði árið
1917. Þar fæddist líka systir mín, sem
dó hálfs mánaðar gömul, fædd með veilt hjarta.
Það var frostaveturinn 1918.
Eftir að ég komst til vits og ára, sögðu foreldrar mínir mér frá þessu –
Þegar pabbi fór með líkkistu barnsins til greftrunar beint yfir fjörðinn, sem
lagstur var undir þykkan, hestheldan ís.
Átthagatryggðin var mjög rík í þeim og kom skýrt fram þegar þau eltust
og töldu kominn tíma til að gera ráðstafanir vegna æviloka sinna, þá skipuðu
þau svo fyrir og lögðu á það ríka áherslu, að þau skyldu greftruð í
Þingeyrarkirkjugarði við hliðina á foreldrum sínum og ættingjum. Þau höfnuðu grafreit sinnar eigin sóknar, sem
var Mýrarkirkjusókn.
MINNI-GARÐUR - GEMLUFALL.
Ég minnist þess
að mamma sagði, að hún hefði alltaf elskað landareignina sína. Minna-Garðinn, og það átti ekki síður við um
pabba. Hann hafði keypt þetta býli og
þarna hóf hann búskapinn. Þó að
húsakostur væri lítill og bústofninn ekki stór, þá var þarna svo fallegt. Bærinn stóð undir birkivaxinni hlíð. Nokkuð er þð einstakt, svona langt út með
fjörðum, birkigróðurinn er víðst mestur inn af jarðarbotnum, þar er skýlla,
sumarhitinn hærri. En ofan við
Minna-Garð klæddi birkiskógur hlíðina. Mamma
sagði mér hvað ilmurinn hefði oft verið sterkur eftir rigningarnótt, þegar
komið var út að morgni og sól skein á hlíðina og birkið stóð laufgað, þá lagði
angan þess yfir túnið og bæinn. Þetta
var henni ríkt í minni, og frá þessum yndisstundum sagði hún mér. Pabbi lagði mikla áherslu á að halda þessari
jörð, hann óskaði þess að við förguðum henni ekki úr eigu okkar eftir sinn
dag. Það höfum við heldur ekki gert. Fósturbróðir okkar, sem nú býr á Gemlufalli,
nytjar Minna-Garðinn, en ábúandi er þar enginn, jörðin fylgir Gemlufalli sem
viðauki.
Afi minn
Guðmundur Jónsson á Brekku, átti hálfa jörðina Gemlufall, ásamt frænkum sínum,
minnir mig. Hann vildi að við flyttum
þangað. Þar taldi hann skilyrði til
betri lífsafkomu en í Minna-Garði,
Gemlufallið var stærri jörð, þar var líka lögferja yfir Dýrafjörð, og
það gaf af sér dálitlar aukatekjur.
Eignarhald á jörðinni og ræktarsemi fóru saman. Það var metnaður gamla mannsins, að eignin
gengi ekki úr ætinni. Það var þetta
viðhorf Guðmundar afa míns, sem olli því, að pabbi og mamma fluttu að
Gemlufalli frá Minna-Garði, eftir þriggja ára búsetu þar. Og það er nú einmitt frá þeim
fardagaflutningi, frá Minna-Garði til Gemlufalls, líklega fjögra kílómetra
leið, sem fyrsta bernskuminnig mín er tengd.
Ég tel upp á að mér hafi ekki verið sagt það, heldur hafi það lifað í
minninu. Þetta var þannig, að fólkið fór
fótgangandi, en farangurinn var hengdur upp á klyfjahest, kannski tvo, en
foreldrar mínir áttu ekki nema eitt hross, hafi þau þá átt nokkurt, sem ég veit
ekki fyrir víst, en lánshestur mun hafa verið fenginn. Þá er það, að við komum að Lækjarósi, sem er
næsti bær utan við Gemlufall, og skilur lækur eða lítil á í milli. Framundan bænum á Lækjarósi breiðir sig flöt
sjávarströnd, gatan lá rétt ofan við flæðarmálið. Það sem ég man er þetta, að hún móðursystir
mín bar mig á langabaki, eins og það var nefnt fyrir vestan, og allt í einu sá
ég yfir öxlina á henni þennan mikla endalausa bláma framundan. Frá Minna-Garði sást ekki mikið til sjávar,
en nú blasti hafið við mér í fyrsta sinn, víðáttumeira og blárra en nokkuð sem
ég hafði áður séð. Ekki mun ég strax
hafa vitað hvað þetta var, en það var mikilfenglegt og mér leið það aldrei úr
minni – blámi hafsins undir heiðum vorhimninum, og frænkan með mig á langabaki,
á rólegri, ögn ruggandi gönguferð, eftir götu fast niðri við flæðarmál – heim
að bænum Lækjarósi í Dýrafirði. Þetta er
fyrsta bernskuminning mín.
GEMLUFALLSHEIMILIÐ.
Sex urðum
viðsystkinin, að meðtalinni systur minni sem dó ung, við lifum fimm, og yngstur
var okkar eini bróðir, fæddur 1924. Við
fæddumst öll sex á einum sjö árum, svo að þetta var heilmikið húshald. En heimili pabb og mömmu og þau sjálf áttu
mikinn hauk í horni, þar sem afi og amma voru.
Hún var ljósmiðir og hún tók á móti öllum börnunum, og hafði til þess
sín verkfæri og sína kunnát frá fyrri tíð.
allfaf þegar barn fæddist, var það næstyngsta lagt fyrir ofan hana í
rúmið – “í holuna hennar ömmu”, sem svo var nefnd, og þar átti það heima þangað
til það varð að víkja fyrir hinu næsta.
Sjálf annaðist mamma alltaf yngsta barnið.
Húsið á
Gemlufalli var timburhús á tveimur hæðum, þó með torfi á þaki og torfi utan á
veggjum, í það minnsta norðanverðu. Á
efri hæðinni var rúmgóð baðstofa með rekkjum undir súð báðum megin. Þarna var allt heimilisfólkið bælt niður,
allir sváfu í baðstofunni. Líka
næturgestir. Ef gestur gisti hjá okkur,
þá gekk bara einhver úr rúmi og tróð sér niður hjá einhverjum öðrum. Á neðri hæðinni var búr og eldhús og lítið
herbergi, sem nefnt var gestaherbergi. Á
flestöllum bæjum var þessháttar smástofa, þiljuð innan og máluð, með borði, tveimur stólum og kannski
koforti að auki, svo að þrír gætu setið í senn.
Seinna komu svefnbekkir í stofuna, svo að gestir gætu sofið þar, eða
kannski bara vikadrengurinn. Þetta
smáþróaðist í átt til nútímans. síðan
var byggt við bæinn, áfast hús á einni hæð, og þá rýmkaðist mikið um
okkur. Það gerðist eftir að vegir og
bílar lögðu undir sig landið. Þá kom í
okkur hugur til að veita ferðamönnum einhvurja þjónustu, til biðbótar því að
ferja þá aðeins yfir fjörðinn og kannski lána þeim hesta til reiðar. Við vildum líka geta boðið upp á sómasamlega
gistingu.
LÖGFERJAN
Það var lögferja
á Gemlufalli, þegar ég man fyrst eftir mér, þá var lítill árabátur mig minnir
það væru í honum þrjár þóftur og það gætu fjórir róið samtímis. Þau ákvæði fylgdu lögferjunni að taka mátti
gjald fyrir að ferja yfir fjörðinn. En
ferjubóndinn var líka skyldugur til að greiða för þeirra, sem þurftu að komast
til Þingeyrar. Árið 1925 var lagður sími
milli Gemlufalls, Þingeyrar og Núps.
Eftir það hefði náttúrulega verið hægt að hringja til okkar handan yfir
fjörðinn og biðja um ferju norður yfir, samt man ég ekki dæmi til þess, enda
nóg af bátum á Þingeyri til að skutla ferðafólki yfir um til okkar. Við vorum í þjóðbraut, því fylgdi auðvitað
gestagangur. Sýslumaður okkar sat á
ísafirði, viðskiptin við stærsta kaupstaðinn voru auðvitað margháttuð. Leiðin frá okkur lá yfir Gemlufallsheið og
nirað Kirkjbóli í Bjarnadal í Önundarfirði.
Úr Önundarfirði lá leiðin til ísafjarðar yfir Breiðdalsheiði, sem bæði
er há og brött.
Ég fór snemma að
sinna ferjustörfum yfir Dýrafjörð. Það
leidd af sjálfu sér. Framan af árum
hjálpaði afi pabba með bátinn. Afi var
þá orðinn heilsulítill, hann dó 1929. Þá
var ekki til margra að leita. Að vísu
var fóstursystsir okkar, sex árum eldri en ég, heima fram yfir fermingu, en þar
sem bróðir okkar var yngstur systkininna, kom það af sjálfu sér að við elstu
stelpurnar gengum snemma að öllum verkum með foreldrum okkar. Mamma var liðtæk líka og taldi ekki eftir sér
að fara í karlmannsföt og standa við slátt og ferja. Ég var líka strax með í förum, svo fljótt sem
ég gat farið að halda um árahlumm og stýrisvöl.
Skemmtilegast fannst mér þegar hægt var að sigla. Pabbi kenndi mér að setja upp segl og hagræða
þeim eftir vindi, slaka á klónni, fá vindinn til að liggja rétt í
seglunum,sigla beitivind. Oft var ekki
hægt að sigla beint inn í vörina á Þingeyri.
Þá var siglt í var upp undir land innan eða utan við við eyrartangann og
svo róið í landvari lengri eða skemmri spöl meðfram ströndinni, til þess að ná
lendingu á réttum stað. Þetta
ferjumannsstarf gat verið nokkuð kuldalegt.
Pabbi var heldur ekki vel hraustur, hann var brjóstveikur, sem kallað
var, hafði orðið fyrir áfalli ungur og aldrei náðs sér að fullu eftir það. Þó var hann ekki berklaveikur, en hann fékk
iðulega lungnabólgu og brjósthimnubólgu.
Á vorin lá hann oft vkum saman og hann var lengi að ná sér eftir
veikindin. Þá urðum við stelpurnar að
standa okkur við ferjuna. Stundum lenti
það á mér einni. En það var tvíbýli á
Gemlufalli og samvinnan við bóndann á hinum bænum var góð. Þegar ég man fyrst eftir mér, voru í hinum
bænum gömul hjón með yngstu börn sín, sem þá voru að verða uppkomin. Seinna tók við búinu ungur maður, sterkur og
ólatur, hann reyndist foreldrum mínum traustur og velviljaður
samstarfsmaður. Þegar vont var veður,
sérstaklega á veturna, gátum við leitað til hans. Þá brá hann við og hjálpaði okkur við
ferjuflutningana, og fékk hann ágóðahlut fyrir, sem að vísu var ekki stór. Hann var okkur þægilegasti sambýlismaður.
Á sumrin voru
ferjustörfin okkur miklu viðráðanlegri.
Tekjurnar sem fyrir þau fengust freistuðu pabba, þess vegna leitaði hann
ekki aðstoðar við þau, nema í ýtrustu nauðsyn.
En hann útbjó bátinn með legufærum sem voru þannig gerð, að hægt var að
draga hann að sér og frá sér eftir vild, með tvöföldum taumum, leggja honum við
bólið og losa hann frá því úr landi. Í
góðu veðri og einsýnu var báturinn dreginn upp í fjöru og skorður settar undir
hann í flæðarmálinu, en í misjöfnu veðri varð að draga hann upp brattan
fjörukambinn inn í naustið. Svo var bátuinnn stækkaður og sett í hann þriggja
hestafla Sleipnisvél. Við það þyngdist
hann svo, að við gátum ekki dregið hann upp með gamla laginu. Þá smíðaði pabbi dráttarspil með löngum
stálvír og við spiluðu bátinn upp í naust án teljandi erfiðis. Þetta voru nú störf okkar stelpnanna ásamt
með pabba, það var engin verkaskipting eftir kynjum á Gemlufalli. Heimilishagirnir leiddu þetta af sér, öllum
fannst sjálfsagt og eðlilegt að svona væri það.
Þú spyrð hvort
nokkur hafi verið hræddur að leggja líf sitt og limi í hendur svo ungra kvenna,
sem við systurnar vorum þegar að við stýrðum ferjunni á Dýrafirði. – Ég held að
við höfum sjálfar haft meiri áhyggjur af verkefninu en ferðalangarnir – að við
stæðum okkur ekki nógu vel í starfinu.
Enginn lét á því bera að hann treeysti okkur ekki. Fyrir kom að fólki lá svo mikið á að komast
yfir fjörðinn, að það vildi allt til vinna – jafnvel láta stelpukrakka eins og
mig ferja sig. Ég man það ég var einu
sinni ein heima á bænum. Þá komu norðan
yfir Gemlufallsheiði tveir menn sem nauðsylega þurftu að komast til Þingeyrar. Þeir lögðu að mér að fá bátinn og að ég kæmi
með og ferjaði þá yfir. Ég lét til leiðast,
enda fannst mér ég vera skyldug til þess.
Þeir áttu vafalaust heimtingu á að lögferjan væri þeim föl. Ég leyfði mér heldur ekki að færast undan og
fór með þeim og við lögðum frá landi.
Mennirnir sögðust geta gripið til áranna, ef annað brygðist, tilmynda ef
ég kæmi vélinni ekki í gang.
Þegar við komum
um borð byrjaði ég á því að stilla vélina, athuga hvort bensín væri nóg og
hvort kveikjan væri hrein. Svo fór ég nú
að sveifa í gang, en það gekk ekki. Út
úr vélinni kom ekki nema slitróttur hósti og stakar gusur af reyk. Púströrið lá upp með borðstokknum og
rokkurinn skyrpti upp um það svörtum sótreyk og þagnaði síðan og lognaðist út
af aftur og aftur og tók ekki við sér.
Mér var farið að líða afleitlega í bátnum og fannst þetta hræðileg
skömm, ef ég kæmi vélinni nú ekki í gang og ferðamennirnir yrðu að róa alla
leið yfir fjörðinn.
Loksins kippti ég
þráðarklónni af vélarkertinu, skrúfaði það úr og fægði það með kjólfaldinum
mínum, skrúfaði það síðan í aftur. Ég
batt fléttur mínar aftur fyrir hnakka, svo þær flæktust ekki í sveifhjólinu,
því að þá var hvorki kominn drengjakollur né gallabuxur til að styrkja
sjálfstraustið. En nú hrökk vélin í gang
og þar með var borgið heiðri skylduþjónustunnar og litlu ferjustelpunnar. Við komumst óhappalaust til Þingeyrar. Innra með mér fylltist ég stolti og
sigurgleði yfir því að fá vélina til að ganga og geta sparað farþegum mínum
áreynsluna við að róa alla leið yfir Dýrafjörð.
Það er til marks
um, hvað fólki gat legið mikið á að komst yfir fjörðinn, að eitt sinn um sumar
hringdi Kristíana heitin Pétursdóttir húsmæðrakennari á Laugum til okkar frá
Flateyri og biður um að senda með hest á móti sér upp Gemlufallsheiði, því að
hún hafi orðið strandaglópur af Esju og verði að ná henni á Þineyri.
Nú voru góð ráð
dýr, því að ekki var til nema ein hryssa heima við og enginn tími til að ná í
annað reiðhross í viðbót. Það ráð var
tekið, að Elín systir mín reið á móti Kristíönu og komst upp Gemlufallsheiði. Hún lét konuma fara á bak hryssunni og hljóp
svo með henni alla leið til baka heim á bæjarhlað. Ekki veit ég hvor sveittari var, hryssan eða
Elín, þegar þær geystumst í hlað, en það sauð á báðum og rauk af þeim gufan.
Nú tók ég við og
hraðaði mér með konuna niður að sjó, þar sem faðir minn beið með bátinn í flæðarmálinu
og vélina í gangi. En til þess að
skrúfuspaðana tæki ekki niðri í sandinum, var ekki hægrt að hafa allan bátinn á
þurru. Ég sá að hik kom á farþegann, að
vaða út í bátinn. Konan var síðklædd og
nokkuð við aldur. Ég hleypti í mig
kjarki, tók hana og lyfti henni upp á öxlina, öslaði með hana út í sjóinn
meðfram bátnum og slengdi henni einhvurn veginn um borð. Hvort hún náði mjúkri lendingu, er önnur
saga, en ekki hlutust af beinbrot. Síðan
var keyrt á fullu og náðist í veg fyrir Esjuna um leið og hún seig frá
bryggjunni á Þingeyri, og þessi þreytta ferðakona klifraði eftir kaðalstiga upp
skipshliðina, og hefur vafalaust prísað sig sæla, því að þá voru skipaferðir
strjálar og öngvar aðrar samgöngur við umheiminn að hafa.
Seinna sendi
Kristíana gjöf til Elínar systur minnar og hvatti hana að koma í skólann til
sín, sem hún líka gerði, og tókst með þeim góð vinátta, sem hélst meðan
Kristíönu entust lífdagar.
LÖGFERJAN YFIR DÝRAFJÖRÐ.
Margt annað
rifjast nú upp fyrir mér frá ferjuferðunum þarna, því að oft voru þær farnar í
mjög vondu veðri. Sérstaklega eru mér
minnisstæðar ferðir farnar á síðkvödum og um nætur á haustin, áður en snjóar
féllu á láglendi, og glórulaust myrkrið grúfði yfir svo ekki sá út úr augum,
heldur var það alsvart og geigvænlegt. -
Kannski var pabbi og einhvur með honum að ferja. Það kom fyrir að þeir hringdu frá Þingeyri
undir þessum kringumstæðum og sögðust vara að leggja af stað og báður okkur
krakkana að koma með lukt niðrað sjónum svo þeir sæu vörina. Ég bjó mig út og hélt af stað með
luktina. Það var ekki langt að fara
nirað sjónum. En biðin þar, í
svartamyrkri og óveðri gat orðið löng.
Maður hlustaði og og rýndi út í sortann, hvort ekki heyrðist í vél eða
árakeyp, hvort ekki sæist hvítt brot fyrir bátsstefni. Þetta reyndi á þolrifin og að halda luktinni
sem hæst, láta gustinn ekki slökkva á henni og bíða og bíða. Öll tilveran valt á því að sjá ferjubátinn
birtast. Ljós var ekki hægt að hafa um
borð, enginn til að gæta þes. Þannig var
það, og þetta vissum við af eigin reynslu.
Eftir að vél var sett í bátinn, var í góðu veðri ekki nema
stundarfjórðungs keyrsla yfir fjörðinn, en ef vélin bilaði og grípa varð til
áranna gat ferðin tekið heilan klukkutíma, ef það var mótvindur og alda. Það gat verið veðrasamt þarna. Væri sunnanrok, þá stóð það í fang þegar
farið var til Þingeyrar en í norðanveðri, fékk maður það á móti sér á
heimleiðinni. Hún hefur runnið mér í
merg og blóð endurminningin um langar og dimmar biðstundirnar með luktina þarna
á Gemlufallsfjöru – að hlusta eftir vélarhljóðinu gegnum stormþyt og
öldugjálfur. Enn í dag get ég hlustað
inn í sjálfa mig og heyrt lönguliðið haustmyrkrið þjóta um æðarnar. Og gleðilegt var að heyra þriggja hestafla
Sleipnismótorinn rjúfa dimman hljóðmúr haustkvöldsins og sjá bátinn renna sér
upp í vörina. Þá rættist innsta þráin,
kvíðinn sleppti hjartanu úr greip sinni, allt varð gott á ný. Og lukkan fylgdi þessum litlala farkosti alla
tíð, aldrei hlekktist honum á, enginn á um sárt að binda í sambandi við
Gemlufallsferjuna.
FAGUR FISKUR Í SJÓ.
En báturinn okkar
var til fleiri hluta nytsamlegur, honum var líka róið til fiskjar. Meðan ég var barn og afi minn lifði enn, á
árunum 1920 til 1929, var útræði enná stundað frá Fjallaskaga, sem er ysti oddi
fjallanna milli Dýrafjarðar og Önundarfjarðar.
Þar var uppsátur og verstöð og lengi var búið þar “við ysta haf”. Ég man eftir því að pabbi minn og afi fóru
þangað með bátinn, og sennilega hafa þeir tekið einhvurja sveitunga sína með
sér, það er trúlegast, því það tíðkaðist að menn af nokkrum bæjum sameinuðust
um fleytu og færu til fiskjar út í fjarðarkjaft.
Á sumartíð blésu
vindar á Dýrafirði ýmist út fjörðinn eða inn fjörðinn, einkanlega í
heiðríkju. Á morgnana fram til hádegis
var innvindur, en síðdegis og framundir sólsetur var útvindur. Þetta var nokkuð stöðugt. Þá voru útvindarnir notaðir til að sigla til
hafs á kvöldin. Menn höfðu með sér
handfæri og dorguðu yfir nóttina, en sigldu inn með hafrænunni þegar leið að
hádegi. Ég man eftir einstaka
siglingu. Við stóðum úti á hlaði og
biðum báts föður okkar og afa. Við
þekktum hann langt að. Ég man þegar hann
kom í ljós framundan Mýrarfellinu með hvítt segla og bar hratt yfir. Þetta var fögur sjón að sjá og eitt af því
sem mér stendur skýrast fyrir augum frá dögum bernskunnar. Svona ferðir voru farnar tvisvar eða þrisvar
hvurt sumar. Oft var komið úr róðri með
bátinn hlaðinn af fiski. Aflanum var
skipt, og kæmi það fyrir, að pabbi væri ekki sjálfur með í róðrinum, þá fékk
hann bástshlut eftir sem áður. Að
stærstum hluta var fiskurinn saltaður, en sumt hengt upp og verkað í
harðfisk. Það var þó fremur á
vetrarvertíð. Þá var keyptur fiskur til
að hengja upp og steinbítur ristur niður og hertur í rikling. Þetta þótti ágætasta búbót, það var lífsbjörg
sem tæplega mátti án vera. En pabbi var
fyrst og fremst bóndi og ekki um eiginlega útgerð að ræða af hans hálfu, nema
helst grásleppuveiðar á vorin. Ég
stundaði með eigin höndum hrognkelsaveiðar.
Það voru engin uppgrip, en gott búsílag samt sem áur. Við þurrsöltuðum grásleppuna í naustinu, það
sem ekki var borðað jafnóðum, og við þurrkuðum og hertum rauðmaga, sem var
mikið notaður til manneldis á Gemlufalli og öðrum bæjum í grennd. Fugl var afatur á móti aldrei á borðum. Þó það kæmi fyrir að æðarfugl festi sig í grásleppuneti
og drukknaði, þá var ekki einu sinni reytt af honum fiðrið, heldur var honum
samstundis kastað burt sem lengst.
Æðarfuglinn var friðaður, drukknun hans í netunum var slys. En kæmi einhvur önnur tegund sjófugls í net,
þá var sá fugl borinn heim og reyttur, en ekki var annað hagnýtt af honum en
fiðrið. Við á Gemlufalli lögðum okkur
ekki fuglaket til munns. Engin var
eggjatakan og æðarvarp ekkert. En utar í
firðinum, jafnvel á Núpi, var fugl notaður til manneldis.
Áður en ég skil
við bátinn, vil ég bæta því við, að hann var hluti af tilveru okkar, öllum
þótti vænt um hann, hann var brú á milli byggða. Margir fleiri áttu auðvitað báta og það var
einn þáttur daglega lífsins að fara á þeim í kaupstaðinn. Enn eftir að vélin kom til sögunnar og hún
var sett í bátinn okkar, gerði hún okkur frjálsari en við höfðum verið fram til
þess tíma, hún rauf stærra skarð í einangrunina og jók hagsæld okkar og
hamingju. Á vélknúnum ferjubátnum lögðum
við undir okkur allan Dýrafjörðinn, frá Tröllaskaga inn í botn.
Síðar eignaðist
heimilið stærri bát. Hann var flatbytna
sem tók 25 manns og var notaður mikið á sumrin í tengslum við bílaferðir, svo
sem hópferðabíla og fastar áætlunarferðir milli vestfirskra byggða.
Bróðir minn
stýrði lengi þessari stóru ferju okkar, sem auðvitað var búin stærri og
sterkari vél en verið hafði í litlu fleytunni.
Eitt af verkefnum lögferjunnar hjá okkur var að flytja póstinn, sem kom
frá Ísafirði og örðum byggðum fyrir norðan okkur, til Þingeyrar. Þaðan fór hann til Arnarfjarðarins og
Patreksfjarðar. Við vorum svona eins og
hlekkur í keðjunni, sem tengdi byggðirnar saman. Ég man vel eftir póstinum. Hann hét Guðmundur og kom oft mikið
verðurbarinn og þreyttur til okkar á vetrartíð, alla leið frá Ísafirði. En þótt hann stæði oft í ströngu þá skein af
honum embættissvipurinn. Hann bar með
sér tösku og lúður, og var greypt í hvorttveggja kóróna og skjaldarmeki, og á
röndinni ofan við Gemlufall (brúninni), þar sem fyrst sést til mannaferða, þegar
komið var að norðan ofan af heiðinni, þar þeytti hann lúðurinn, ég held í og
með okkur til gamans, en líka mæltu landslög svo fyrir, að þannig skyldi hinn
konunglegi embættismaður gera vart við sig.
En þannig endaði
nú ganga Guðmundar pósts, að hann kól á fótunum á leiðinni að norðan. Hann var illa farinn þegar hann kom til
okkar. Mér er það vel minnisstætt, pabbi
lánaði honum rúmið sitt og hann var háttaður ofan í það. Fyrst var hann þó látinn sitja með fæturna
ofan í bala fullum af vatni og klakastykkjum, meðan kalið var að þiðna. Fljótlega var honum komið undir læknishendur
á spítalanum á Þingeyri. Gunnlaugur
heitinn Þorsteinsson tók við honum þar, og þar lá hann margar vikur og missti
nokkrar af tám sínum. Ég held hann hafi
hætt póstferðum eftir þetta og hann hafi verið síðasti landpósturinn á þessum
slóðum, mig minnir það.
SKÓLINN.
Þú spyrð um
barnaskóladaga mína. Jú, í sveitinni var
farskóli. Kennt var á þremur
stöðum. Skólastaðurinn minn hét að
Lambahlaði og var byggt sem skólahús, annar var á Núpi, og þar var líka
barnaskólahús út af fyrir sig, tvær hæðir, skólastofa uppi, en svefnskáli fyrir
nemddurna niðri. Svo var það
Ingjaldssandur. Þar var lengi kennt í heimahúsum, mig minnir í Álfadal. Landdfræðilega séð tilheyrir Ingjaldssandur
varla Dýrafirði. Hann er Önundarfjarðarmegin
á nesinu milli fjarðanna, en samgönguleiðin var til Dýrafjarðar, yfir
Sandsheiði, sem reyndar er brött og viðsjál.
Til Önundarfjarðar eru ófærur með ströndinni, og yfir ennþá brattari
fjöll að fara, ef valin var landleiðin.
Ingjaldssandur liggur fyrir opnu hafi, þar er oft brimrót vikum saman.
Lambahlað var
reist fyrir 1910. Húsið stóð á milli
tveggja bæja, Gils og Gemlufalls, og var ekki nema um 10 mínútna gangur frá
þeim bæjum til skólans, ef gott var veður.
Gil var einn af þeim þremur bæjum, sem mynda þorpið, sem kallað var,
líklega af því að túnin lágu öll saman.
Hinir bæirnir í þorpinu voru Fremstuhús og Bakki, sameiginlegt nafn
þeirra var Bakkaþorp. Seinna var Bakki
skírður upp og nefndur Neðri-Hjarðardalur.
Þann stað gerði Jóhannes Davíðsson frægan með félagsmálastörfum sínum,
fréttaþjónustu og blaðagreinum. Hann kom
frá Ingjaldssandi. Framar og upp af
þorpinu var Hjarðardalur. Þar var
tvíbýli og heimili kennarans, líklega tuttugu mínutna gang frá fremsta bænum í
þorpinu, hálftíma gang frá Lambahlaðsskólanum.
Ámóta langt var frá Höfða í skólann.
Þar var tví- og þríbýli og standa bæirnir undir lágu fjalli eða höfða,
sem þeir draga nafn af. Þar framundan
gengur oddi út í fjörðinn með nokkuð víðlendum sandeyrum, sem nú hafa verið
græddar upp og ræktaðar. Þar byggðu
Norðmenn hvalstöð, sem kölluð var í Framnesi, og stóðu ennþá stórir katlar á
oddanum, þegar ég var barn. Það má ætla
að frá þessum mönnum, Norðmönnum, hafi borist til sveitarinnar ýmsir
menningarstraumar. Meðal annars hef ég
heyrt, að Guðmundur Hermannsson hafi fyrir atbeina þeirra leitað sér
menntunar. Núna er talað um að leggja
þarna brú yfir Dýrafjörð.
Skólasvæði
innsveitarinnar náði út að Mýrum, sem er kirkjustaður, þaðan var hálftíma
gangur í skólann. Als munu börn frá 20
býlum hafa sótt skólann í Lambahlaði, en oftast vorum við 12 til 14 samtímis, á
öllum aldri eða frá 10 til 14 ára.
Kennarinn okkar hét Guðmundur Hermannsson og hafði menntast í Flenzborg. Hann var bóndi og hafði fyrir átta börnum að
sjá. Hann var þrekmenni og lét sér ekki
allt fyrir brjósti brenna, til dæmis tók hann á móti tvíburum hjá konu sinni og
skildi sjálfur á milli, af því að ljósan komst ekki í tæka tíð. Dóttir þeirra, Vilborg, er nú ljósmóðir í Dýrafirði. Þar er oft læknislaust, eins og víðar á
útkjálkum landsins, og hvílir nokkur baggi á hennar herðum.
Skólahúsið okkar
var tvílyft steinhús, timburklætt að innan.
Það rúmaði stofu með fjórum bekkjum búnum bakfjöl og áföstum borðum,
kennarapúlt, stól og baklausan bekk. Á
einum veggnum var stór svört reikningstafla, landabréf í hólki stóðu út í
horni, þarna var líka stór svartur kolaofn og kolatína sem svo var nefnd. Innst í anddyri voru tveir skápar, í öðrum
voru kol og olía, hinn var fyrir skó, einnig var fatahengi í anddyrinu og stigi
upp á loftið, sem var lágt. Þar var
langborð og baklausir bekkir, sem notaðir voru þegar ungmennafélagsfundir voru
haldnir í skólanum. Þá og þegar
jólatrésskemmtanir voru haldnar, voru veitingar þarna uppi. Hitað var á olíuvél. Þar var margur góður sopinn og bitinn
frmreiddur, þótt fullorðið fólk gæti ekki staðið upprétt við vinnuna. Tvö útisalerni voru áföst við húsið. Kenndar voru undirstöðnámsgeinar: lestur,
skrift, reikningur, kristinfræði, íslenska, landafræði, réttritun, dýrafræði,
ofurlítið um manninn, söngur, stíll.
Flestir voru vel læsir og skrifandi þegar í skólann kom. Við lásum alltaf upphátt fyrir alla á hvurjum
egi, og það kom þá með æfingu, ef á vantaði.
Fyrst voru notaðar forskriftarbækur eftir Morten Hansen. Þegar þær þraut, fengum við forskrift í
skólabækur. Kennarinn sá um það, en sum
okkar báðum söngkennarann okkar, Guðjón Davíðsson, að gefa okkur
forskrift. Hann var listaskrifari og
taldi ekki eftir sér að sinna þessu kvabbi, - sitja við það heilu kvöldin. Ég nefndi han söngkennara. Hann var þó áreiðanlega ekki ráðinn til
söngkennslu af opinberum námsstjórum, en hann átti gott og göfugt hjarta, sem
ómaði af söng, lofgjörð til lífsins.
Einhvurn góðviðridag kom hann með orgelið sitt í skólann. Það var dregið á sleða yfir frerann, og
skólabörnin og kennarinn hjálpuðust að við að styðja það. Svo voru söngtímar, kannski einn eða tveir á
viku. Guðjón kenndi okkur yfirraddir,
milliraddir og bassa. Þetta var séræft,
en síðan stóðum við öll saman þétt í hóp og hann sló taktinn. Litla stofan okkar fylltist af hljómi, sem
ennþá geymist í sálinni.
Foreldrar mínir
höfðu tekið að sér að hirða skólahúsið, kveikja upp á morgnana og annast
þrif. Faðir minn fór þá snemma á
morgnana og ég fylgdist stundum með honum, ef vont var veður, og beið svo
hinna. Stundum fór ég ein og kveikti þá
upp. Vegurinn lá meðfram sjónum. Þegar svarraði við ströndina, vöknuðu margar
spurningar: Voru til fjörulallar eða
sækýr og ófreskjur? – Stundum fannst mér efrfitt að opna þunga útidyrahurðina í
skólanum, fara inn í myrkrið og kveikja á olíulampanum, samt var ég aldrei
myrkfælin. Ég man einn morgun, þegar ég
fylgdist með pabba í skólann. Þá var mög
vont veður, svo við vissum ekki hvort nokkur kæmi í skólann. Pabbi fór samt einn til baka heim. Þessi einverustund varð mér nokkuð
þungæbr. Örðu hvurju reyndi ég að komast
út til að vita hvort ég sæi nokkurn koma.
Um tíma þorði ég ekki út. Ef ég
opnaði dyrnar, þá gustaðist hríðin inn milli stafs og hurðar, og ég flýtti mér
að skella aftur. Svo dró eitthvað niður
í rokinu og ég sá fyrir horn. Á engjunum
milli bæjanna sá ég hilla undir dökka þúst sem þokðist nær. Það voru skólakrakkarnir og kennarinn. Það var Guðmundur Hermannsson og hann leiddi
alla nemendur sína. Hann leiddi okkur
einnig gegnum myrkur fáfræði og fátæktar.
Hann hafði svo hlýja og sterka hönd.
BAÐSTOFULÍF Á GEMLUFALLI.
Ég hef leitt hugann að því stundum, hvurnig ætti
að koma nafni á það lífsform, sem lifað var í baðstofunni á gömlum
sveitabæjum. Þetta voru herbergi uppi á
lofti bæjanna, sem voru flestir með sama sniði á Vestfjörðum: Ein hæð með risi. Stafngluggar voru á báðum göflum, fjórar til
sex rúður í hvorum glugga. Baðstofan
náði eftir endilöngu loftinu. Í þessu
herbergi var sofið, eins og fyrr segir en þar var líka vettvangur allra
mögulegra starfsgreina. Ég get nefnt þær
með nútíma nöfnum, væntanlegum lesendum til skilningsauka, en um leið minni ég
á, að amma mín var ljósmóðir og heimilisföst hjá foreldrum ínum. Baðstofan okkar var þess vegna allt í
senn: fæðingarheimili, vöggustofa,
leikskóli, dageimili, sjúkrastofa, vinnuhbergergi, langlegudeild,
föndurhebergi, kennslustofa, bókhaldsskrifstofa og bankahólf. Heimilið okkar var miðstöð margháttaðra
starfa. Þar var lögferja, símstöð,
póstafgreiðsla, hestageymsla, bensínafgreiðsla, og greiðasala lengi vel. Þessu fylgdu óteljandi sendiferðir eftir
fólki í síma, og þurfti þá stundum að fara á sveitarenda, margra kólómetra
leið. Síðan voru póstferðir, oft erfiðar
að vetri vegna snjóa. Algengt var, að
fólk af bæjunum í kring pantaði ýmis konar varning frá Þingeyri gegnum
símstöðina hjá okkur. Oft vorum við
systkinin á hlaupum við þetta allan daginn.
Ragnheiður fóstursystir fékk sinn skerf af margháttuðu erfiði. Öngvum vettlingatökum tók hún á verkefnum
sínum, heldur stóð hún sem víkingur við hlið okkar í blíðu og stríðu.
Faðir minn var
óþreytandi við að hugsa upp aðferðir til að létta störfin. Hann leysti okkur undan ströngu erfiði
heybindinga með því að búa til heysleða.
Heyflutningur af túninu gekk mjög vel með því tæki. Heyið var dregið með talíu-útbúnaði inn í
hlöðu, og var klárinn okkar látinn hafa fyrir því. Mamma var mjög metnaðargjörn um afkomu
búsins. Á björtum sumardögum, þegar
verið var að hirða sígærna ilmandi töðuna, barst söngur hennar út um opinn eldhúsgluggann
og angan af heitum pönnukökum bar fyrir vit okkar, sem úti vorum. Þá var yndislegt að koma inn, setjast við
borðið og svala þorsta og seðja hungur.
Gleði hennar var líka innileg, þegar nytin hækkaði í kúnum og rjóminn
var gulleitur eins og sumarrjómi, eftir að pabbi fór að gefa kúnum
votheyið. Hann mun hafa verið einn
fyrsti bóndinn í Mýrarhrepi, sem gerði sér votheysgryfju.
Á Gemlufalli var
löng leið að vatnsbólinu, tvö hundruð til þrjúhundruð metra leið – og allt á
fótinn. Þegar ég man fyrst eftir mér var
það sótt og borið heim í tveimur fötum með vatnsberagrind. Stundum á veturna var svo hvasst og frostið
svo mikið, að ekki var eftir nema dreytill í fötunum, þegar heim var komið,
afgangurinn orðinn að klakaskán utan á fötunum, sem héldu áfram að vera
níðþungar, þó að vatnið í þeim minnkaði.
Pabbi útbjó tunnu, sem kerrujálkar voru festir á, og hesturinn var
látinn draga heim vatnstunnuna. Síðar
var vatnið leitt gegnum pípur heim í bæinn, úr gili hátt uppi í fjalli.
Það var smiðja á
bænum. Í litlum kofa í túninu eyddi
faðir minn mörgum stundum við járnsmíði.
Hann átti einnig lóðbolta og gerði við skilvindur og aðra
bráðnauðsynlega hluti fyrir nágrannana.
En hann vantaði verkfæri til að erja jörðina, kveikja líf í gráum
móunum, ræsa fram mýrlendið og slétta úr þúfunum. Hann hafði ekki heilsu til að vinna með
ristuspaða og stunguskóflu. Þessi leit
eftir úrræðum var honum ástríða til dauðadags.
Hann fórnaði tíma og fjármunum umfram getu til þessara hugðarefna. Síðustu æviárin dvaldi hann á sjúkrahúsum
syðra, en þar hafði hann hjá sér í poka ýmis handverkfæri gerð til
jarðyrkjustarfa. Að síðustu lögðum við
litla ræmu af vestfirksum jarðvegi í kistuna hans, og litlu stúlkurnar sem
stigu aflinn í smiðjunni og blésu að glóðinni fyrir hann, lærðu af
ástríðuþrungnum hamarshöggunum á steðjanum lögmálið: “Járnið skal hamra heitt. Að hika er sama og tapa”.
UM ÖMMU.
Kristín amma lá
síðustu æviárin rúmföst vegna gigtar, en hún prjónaði, gerði við fatnað, las,
skrifaði mikið af sendibréfum og fylgdist með öllum fréttum af áhuga, svo og
högum heimilisins. Hún lagði áherslu á
að við værum sendibréfsfærar, eins og hún kallaði það, auk þess sem hún
fóstraði okkur á nóttu sem degi með ástúðlegu rólyndi sínu og ærðuleysi, þrátt
fyrir sín eigin veikindi, sem voru oft þjáningarfull, sérstaklega um
nætur. Ég man eftir sárum stunum hennar
á baðstofuloftinu, og hún bað þá oft fyrir sér og sínum.
Þann tíma sem
kennt var á Lambahlaði, komum við úr skóla eftir klukkan þrjú á daginn, þá
borðuðum við. Síðan fórum við oft beint
til gegninga, komum inn um sex leytið svo þreytt að við ultum út af sofandi og
sváfum fram að kvöldmat. Námsaðstaðan
var ekki hagstæð: fimm systkini í hóp,
öll á skólaaldri, tilheyrandi vopnaskak og hávaði í baðstofunni. En við eldri börnin vöknuðum oft snemma á
morgnana, jafnvel fyrir klukkan sex, kveiktum á kertisstúfi, sem bræddur var
fastur á rúmstuðul, og lásum undir kennslustundir dagsins.
Mamma hafði kennt
okkur að lesa, pabbi kenndi okkur reikning og amma lét okkur skrifa ljóð og
greinar, sem henni þótti til um, svo það efni festist okkur í minni. Hún skrifaði sjálf fallega rithönd, var
hagyrðingur góður og réttritun hennar brást ekki.
Ég minntist á
bankahólf. Vegna margháttaðra starfa,
þurfti að aðgreina fjármuni. Fyrir ofan
ömmu mína, undir rúðinni, voru geymd fjögur box úr pjátri. Eitt þeirra fannst mér merkilegast. Utan á því var mynd af Sir Walther Raleigh! –
Í þessum boxum voru geymdir peningar: fyrir flutninga, fyrir símann, fyrir
bensín, og svo sparipeningar okkar krakkanna.
Þessa sjóði dirfðist enginn að snerta, nema faðir minn, og þar fór
enginn hlutur milli mála.
Þessi geymsluhólf
hennar ömmu mátti nefna eftirtöldum nöfnum: Öflun, Geymd og Ráðstöfun. Uppskeran af þessari tilhögun og reglusemi
varð sú, að við litum á það sem ófrávíkjanlega skyldu að bregðast aldrei neinu,
sem okkur var til trúað.
Eitt verð ég að
minnast á: Hún amma hafði þær fegurstu hendur, sem ég hef séð, og þeim fylgdi
líknandi máttur og lífshamingja í starfi.
Hún og faðir minn græddu brunasár, þar sem vökvablaðran var
hnefastór. Ígerðir voru vafðar
hófblöðkum, sem eru blöð hófsóleyja, og greru undursamlega. Þeim tókst að lækna botnlanga- og
lífhimnusjúklinga, magasár voru grædd, og fleira mætti telja.
Amma skrifaði
lýsingar á öllum fæðingum meðan hún var ljósmóðir, og það var einsdæmi á þeirri
tíð. Hún stóð oft ein í því starfi,
vissulega kom það fyrir, að um líf eða dauða var að tefla.
Kristín amma
andaðist 15. maí 1944, áttatíu og níu ára.
Hún hélt sterkri andlegri heilbrigði til dauðadags. Þetta vor var þjóðaratkvæðagreiðsla um það,
hvort Ísland ætti áfram að verða undir Danakonungi eða sjálfstætt
lýðveldi. Amma óskaði þess, að hún fengi
að lifa nógu lengi til að geta kosið. Þá
var leyfð heimakosning sjúkra með aðstoð oddvita. Síðusu vikurnar fyrir kosningar var mjög af
ömmu dregið, svo að hvorki nærðist hún eða talaði dögum saman. Þann 13. maí reis hún upp við dogg í rúminu
og sagð: “Fer hann Kristján ekki að
koma” – en svo hét oddvitinn. Hann kom
þennan dag til hennar og hún fékk sína síðustu ósk uppfyllta. Að því loknu sagði hún:
“Ég hefi oft
staðið frammi fyrir því í lífinu að vita ekki hvort ég væri að gera rangt eða
rétt, en nú veit ég að ég er að gera rétt”.
Það voru hennar
síðustu orð í þessu lífi.
Á NÚPSSKÓLA:
Það var í vetur á
útmánuðum, rétt áður en við hófum þetta spjall.
Guðmundur, að ég sá þætti í sjónvarpin um furður veraldar. Menn hafa lengi glímt við að skilja alheiminn
og gátur hans, en einn þessara þátta vakti hjá mér gamlar minningar.
Faðir minn var
tvo vetur í Núpsskóla, en þegar hann lauk því námi, fékk hann stjörnufræðibók
sem viðurkenningu fyrir bestu framför og ástundun við nám. Þessi bók var bundin í bláan “shirting” og
geymd á hillu fyrir ofan rúmið hans. Mér
fannst hún bera af öðrum bókum á hillunni, enda voru það búnaðarrit,
Íslendingasögur og almanök óbundin.
Þessa bláu bók
tók pabbi stundum ofan úr hillunni á heiðríkum vetrarkvöldum og bað okkur eldri
börnin að koma með sér út á bæjarhlað.
Þar tók hann að fletta upp í bókinni og segja okkur nöfn stjarna og
stjörnumerkja. Jú, þetta stóð allt
heima: Þarna uppi á “himins blá boga”
logaði pólstjarnan í skottinu á “Litla birni”, “Stóri björninn”, tvíburarnir
“Castor og Pollux”, “Sjöstirnið”, “Fjósakonurnar” þrjár í sverði “Óríons” og
mörg fleiri voru nöfnin.
Þá spurðum við
stundum:
“Já, en pabbi,
hvar endar himininninn?”
“Himinninn er
eilífðin, börnin mín,” svaraði hann hljóðlátlega og gekk aftur inn í bæinn.
Fimmtíu árum
síðar, eftir þrotlausa leit, með allri tækni sem háþróuð vísindi okkar daga
ráða yfir, gefst okkur þetta sama svar:
“Himinninn er eilífðin, börnin mín”.
Ég kveð þessa
bernskudaga með miklu þakklæti, sannfærð um að lífstrú feðra og mæðra er
grunnur sem óhætt er að byggja á. Árin
sem liðin eru síðan við bjuggum sman, hafa staðfest þau einföldu sannindi, sem
fólkið í fátæklegu baðstofunni trúið á.
Engin nútíma vísindi hagga þeirri staðreynd, að þar var byggt á bjargi.
Mannaferðir voru
ekki tíðar um sveitina í bernsku minni.
Vestfirski veturinn er ekki lamb að leika við, snjóþungt var svo að ekki
sá á dökkan díl mánuðum saman, sjórinn var aðal samgönguleiðin. Einn og einn maður rölti þó milli bæja,
kannski til að fá sér í nefið hjá nágranna eða ræða landsins gagn og
nauðsynjar. Undantekningar voru þegar
boðað var til messu eða ungmennafélagsfunda.
Séra Sigtryggur Guðlaugsson var prestur okkar. Hann stofnaði Núpskóla 1907 og gerðist
leiðtogi og menningarfrömuður vestfirskra byggða um áratugi, hófsamur,
söngmenntaður og bjartsýnn á gróðurmöguleika, jafnvel í skriðum brattra fjalla
Dýrafjarðar. “Skrúður” heitir garðurinn
hans, stolt vestfirskrar ræktunar. Þar
stendur nú minnismerki um þau frú Hjaltlínu og séra Sigtrygg, en
skógræktaraðilar sinna verndun garðsins.
Fljótlega kom til
samstarfs við séra Sigtrygg Björn Guðmundsson.
Hann hafði numið í dönskum og norskum skólum, Askov og Voss. Björn var hrifnæmur, hlýr, hann söng, lék á
fiðlu, lék í leikitum, drátthagur var hann, skrautritari, upplesari afbragðs
góður, rómantískur frjálshyggjumaður.
Hann kenndi svo við skólann, stofnaði ungmennafélag, barst á fáki sínum
fráum, sem Fífill hét, um sveitina, tók okkur krakkana með og byggði upp fyrsta
hlaðna vegarspottann þar um slóðir, yfir svo slæmt mýrarfern, að sagt var, að
þó að kölski sæti örðum megin við það, en fortöpuð sál hinum megin, þá mundi sá
gamli hugsa sig tvisvar um áður en hann legði í fenið.
Nemendur skólans
komu stundum með Birni á ungmennafélagsfundi að Lambahlaði, tóku þátt í störfum
eftir dagskrá, leikjum og söng, lék þá Björn gjarnan undir á fiðluna. Mér fundust Núpverja glæsilegir, frjáslegir
og skemmtilegir, og allir jafnaldrar mínir þráðu að standa í þeirra sporum og
komast í skólann. En þá var að afla
peninga. Úrræðin voru að “fara í vist”
eða kaupavinnu. Ég var svo heppin að
ráðast í kaupavinnu til móðurömmu minnar, sem ennþá stóð fyrir búi á Brekku,
ekkja, en tveir yngstu synir hennar með henni.
Búið var með gömlu sniði, unnið með handverkfærum, nema komin var
slátuvél, sem tveimur hestum var beitt fyrir, þar sem búið var að slétta. Það var gömul rækt í vinnubrögðunum. Amma mín var búkona. Hún lagði áherslu, á, að öll verk væru unnin
stundvíslega: smölun í kvíar, mjaltir á ám og kúm, - þar mátti ekki skeika
mínútu. Ef út af bar, sást hún gjarnan
úti á bæjarhlaði, horfa til þeirra sem voru að verða of seinir, það nægði.
Jónína amma var
árrisul – ég einnig. Þótt hún færi
hljóðlega, vaknaði ég oft þegar hún reis á fætur. Eftir skamma stund sá ég á eftir henni niður
tún – að gömlu brunnhúsi sem lækur rann frá.
Þar voru nokkrar heimaaldar endur að baða sig. Þær verptu eins og hænsni allt sumarið. Amma var búin að kveikja upp eldinn klukkan 6
á morgnana, léttbaka brauð handa öndunum, hún færði þeim það volgt af pönnunni. Við nutum oft umhyggju hennar, hún var ekki
margmál, en hún sagði mér frá því, að þegar hún var “léttastelpa” hjá
vandalausum, hefði hún smalað berfætt allt sumarið. Húsbændunum fannst óþarfi, að hún sliti skóm
og sokkum á þeim hlaupum. Vel var orðið
byggt yfir menn og skepnur á Brekku, þrátt fyrir kreppuna, það fólk lá aldrei á
liði sínu.
Haustið 1934, um
veturnætur, fór ég í Núpskóla. Fyrsta
skólahúsið var timburhús, tvílyft með kvisti.
Þar var íbúð séra Sigtryggs, uppi, skólastofa niðri, og herbergi
ráðskonu og kennara. Síðar var húsinu
lyft, steyptur kjallari með eldhúsi, borðstofu og geymslu, byggður við það
fimleikasalur og yfir honum svefnloft stúlkna.
Piltarnir sváfu á neðri hæð barnaskólans. Þar var nefndur “Skáli” – Um 1930 var byggð miðbygging
fyrirhugaðrar húsasamstæðu. Þar var í
kjallara sundlaug, gufubað og búingsklefar, og lítil íbúð. Á miðhæð voru tvær stórar og bjartar
skólastofur, geymsluherbergi og gangur upp á loft. Þar var svefnloft pilta og herbergi fyrir
kennara. Þá var “Skálinn” gerður að
smíðastofu og gamla skólastofan að stúlknavist, með fimm eftri og neðri
kojum. Þarna var mín heimavist báða
veturna.
Á þesum árum var
búið að raflýsa á Núpi. Byggð var stífla
í Núpsá næstum niðri við sjó, og stöðvarhús.
Orkan nægði til eldunar og ljósa, og að vissu marki til upphitunar á
skólanum, þar að auki var hægt að raflýsa þorpið. Við stöðina var stórt lón. Þar komu upp sömu vandmál og við Búrfell og
Sigöldu núna, þegar vetrarhríðar geisuðu: allt fylltist af krapi, rafmagnið
fór, og það varð að grípa til kola og olíutækja, sem alltaf var séð fyrir að
til væru sem varaskeifa. En svo varð að
gera út flokk hraustra drengja. Þeir
skólabræður mínir ásamt kennurum stóðu oft við það mikinn hluta nætur, í frosti
og hríðarbyl, með frumstæð verkfæri í höndum, að koma rennsli á lónið.
Þegar ég kom í
skólann, hafði þar verið starfað um þrjátíu ára skeið. Fyrstu nemendurnir voru orðinir miðaldra fólk
eða meira. Þetta fólk bar greinilega
uppi félagslega menningu Vestfjarða.
Námsáhugi var ennþá vakandi, fátækir unglingar komu víðsvegar að, til
þess að bergja á þessum brunni. Þeir
sáust stundum sokkalausir í skónum um hávetur, ef illa gekk að þurrka plöggin,
en nýja rafstöðin veitti okkur birtu og yl innanhúss, og allir áttu einhvur
ferðaföt til að vera í utandyra.
Sumartekjunum varð að skipta milli fatnaðar-, fæðis- og bókakaupa. Margir áttu ekkert þar fram yfir. Ekki höfðu allir nemdendur efni á að fara
heim til sín um jólin.
Helgi Valtýsson
hafði komið kennari til skólans veturinn 1932-´33. Hann var þá nokkur við aldur og átti sér
glæsilega feril. Hann var Austfirðingur
frá Loðmundarfirði. Ungur fór hann til
Noregs, til kennaranáms og var þar langdvölum, munu fáir Íslendingar hafa unnið
fjölþættari menningarstörf utan lands og innan en hann. Hann var meða annars kennari, blaðamaður og
ritstjóri, fyrirlesari, fréttaritari norskra blaða um árabil, rithöfundur og
skáld, þýðandi fjölmargra bóka norskra, einn af stofnendum U.M.F. Reykjavíkur
og sambands U.M.F.Í. og formaður þess 1908-´11.
Ég get þessa vegna þess, að það gegndi vissulega nokkurri furðu, að þessi
fjölhæfi eldhugi skyldi koma vestur og gerast kennari á Núpi, heldur afskekktum
stað uppi í sveit. Hann átti norksa konu
og fjögur börn á Akureyri. Ef dæma má af
kvæðum hans, voru þau mjög hamingjusöm, þar til hann varð fyrir fjárhagslegu
áfalli í sambandi við líftryggingarfélagið “Andvöku”, hann hafði stofnað
Íslands deild þess, en félagið var annars norskt. Kannski voru fjármálin ekki hans sterka hlið,
en óhlutvandir menn áttu stóran þátt í óförum hans. Eftir það áfall fór þeim konu hans ekki talað
orð í milli í 20 ár. Hann var því í
sárum þegar hann kom að Núpi og kannski fannst mér hann þess vegna eldri en
hann var. Helgi Valatýsson var kvikur og
léttur í spori, eins og hann gengi alltaf eftir hljóðfalli hoppandi lækja, eða
var það vorvindurinn sem bar hann “glaður, glettinn og hraður”, eins og hann
sagði sjálfur í vikivaka?
Við skólann okkar
starfaði einnig Viggó Nathanaelsson fimleikakennari, mikill atgefismaður og
glímukappi, ennfremur Hólmfríður dóttir Kristins bónda á Núp, handavinnukennari. Séra Sigtryggur var hættur skólastjórn og
kennslu, Björn tekinn við, en andi Grundvigs sveif yfir vötnunum, mannræktin
var í hávegum höfð. Þetta einvala
kennaralið var vel fært um það hlutverk.
Námsgreinararn
voru ekki margar, svipað og í barnaskóla, en þessir kennarar leiddu okkur miklu
lengra um lönd og áflur en sem bóklestri nam.
Það opnuðust nýir heimar og orka leistist úr læðingi. Við fórum að hugsa um þjóðfélagsmál, skipa
okkur undir merki, rökstyðja skoðanir, flytja mál. Einnig áttum við okkar samfélag. Það voru húsbóndi og húsfreyja í hópi
nemenda, sem báru ábyrgð, allir unnu þegnskylduvinnu. Enginn krafðist launa. Við fylltumst metnaði
fyrir skólans hönd, hann átti að vera “héraðsvörður um verðandi hag”, eins og
Halldór á Kirkjubóli orðaði það, og ég tel að þessir árgangar nemenda hafi,
þegar út í lífið kom, tekið á herðarnar sinn skerf af byrðum þjóðfélagsns og
ekki kiknað undir þeim.
Ég minnist allra
þessara stunda á Núpi með þakklæti til kennara minna, þeir gengu á undan með
góðu eftirdæmi, og hollráð þeirra fylgdu okkur.
Það var út af fyrir sig ævintýri að kynnast Helga Valtýssyni,
sambærilegt við ævintýrin í Þúsund og einni nótt. Kannski komum við til hans að skila
stíl. Það sat hann með heyrnartæki að
hlusta á útvarp, leiðrétti stíla um leið, eða skrifaði sendibréf, og talaði svo
eðlilega við okkur, eins og hann var ekkert annað að gera. Hann var fátækari sérhvurjum öreig, en um
leið auðutstur manna. Hann elskaði
lífið.
PRESTFRÚ OG
HÚSFREYJA Á NÚPI.
Eftir fyrri vetur
minn á Núpi, fór Helgi Valtýsson heim til bús og barna á Akureyri, og hef ég
fyrir satt, að þar leystust vandamál hans.
Heilar sættir tókust með honum og konu hans og þau urðu hamingjusöm á
ný.
Annar vetur beið
mín á Núpi við nám. Þá kom nýr kennari
að skólanum í stað Helga. Hann var
guðfræðingur og hafði meðram einnig lokið námi í Kennaraskólanum. Maðurinn var Eiríkur Júlíus Eiríksson frá
Eyrarbakka, ættaður úr Biskupstungum og úr Ölfusi. Auk kennslustarfanna hafði hann ráðist sem
aðstoðarprestur til séra Sigtryggs sem þá var orðinn aldinn að árum.
Við komum flest
aftur frá fyrra vetri, skólasystkinin, mun öruggari en fyrr og áttum að minnsta
kosti hálfan heiminn, ofurlíð uppreisnargjörn, gagnrýnin, full baráttuvilja
gegn fátækt og basli. Sá vilji stæltist
við eigin erfiðleika að komast til náms.
Við vissum lítið
um nýja kennarann, en fundum fljótlega að hann var ákveðinn og lét ekki vaða
ofan í sig, og að hann var frábær kennari.
Vissulega færði hann okkur nýjan stíl í ræðu og riti, það var hann sem boðaði
okkur nýja trú, dýpkaði skilning, efldi hugarflugið, þar var eins og sitja á
áhorfendabekk, þar sem tjaldið var dregið frá ólíklegustu sviðum, eftir
námsgreinum. Í landafræðinni blésu hlýir
monsúnvindar um stofuna, og í sögunni stigu ólíklegustu menn út úr fortínni og
voru meðal okkar. Þó mun íslenskukennsla
hans verða mörgum eftirminnilegust.
Orðkyngi hans, ásamt viðkvæmri, rómantískri skilgreiningu á verkum
snillinga, var markviss, og greytpist okkur í minni.
Það var venja að
halda skólaskemmtun seinni hluta vetrar og færa þá upp leikrit. Eiríkur þótti sjálfkjörinn stjórnandi þess
fyrirtækis þennan vetur. Hann valdi sem
leikverkefni “Saklausa Svallarann” sem hann lé svo í sjálfur, og reyndar hafði
hann leikið hlutverkið áður á “Herranótt Menntaskólans í Reykjavík. Honum tókst að allra dómi mjög vel að kalla
fram í okkur leikaraskapinn, hafði auk þess sjálfur ríkulega hæfileika á
sviði. Hvort það var upphafið að lengi
kynnur okkar, að hann valdi mig til að leika “frúna” sína, veit ég ekki, en andstæð
rafskaut tóku að gneista milli okkar eftir það.
Svo leið að
vori. Við í eldri deild áttum að skila
prófritgerð um sjálfvaldið efni. Það var
mikill höfuðverkur, fyrst að finna efni og síðan að gera því skil. Metnaður minn var töluverður. Sumir áttu nokkuð lengri tilsögn að baki, til
dæmis frá kennslu í þorpsskólum, það sem kennt var allan veturinn og einn vetur
í framhaldsdeild, þar sem meðal annars voru kennd tungumál. En við sveitakrakkarnir létum ekki hlut okkar
fyrir neinum, við leituðum, gripum ólíklegustu bækur af borðum kennaranna, til
að finna rök fyrir máli okkar. Við
ræddum við kunningja, okkur eldri, lágum andvaka og brutum heilann um efni,sem
jafnvel kennurum okkar þótti með ólíkindum.
En sannleikurinn var sá, að okkar ágætu og ég vil egja fágætu kennarar,
áttu auðvitað upptökin að heilabrotunum.
Undir áhrifavaldi þeirra mentastofnunar sem Núpsskóli var, mótaðist
sífellt fleira fólk. Glöggskyggni
mótndans á efniviðinn gerðu margan nemandann að listamanni til orðs og
handa. Meðal skólasystkina minna hafa
komið fram margir lista- og atgerfismenn, karlar og konur, og ég fullyrði að
skólinn átti sinn sterka þátt í því.
Leiðir skildu um
vorið. Þær lágu í allar áttir, út og
suður í tvö ár. Eiríkur fór til Sviss
til framhaldsnáms í guðfræði, síðan vestur aftur sem vígður prestur og sótti um
Dýrarfjarðarþing, sem hann var kosinn prestur til. Ég fór suður það haust og hugsaði sem svo, að
gott væri að fá hússtjórnaryfirsýn, þar sem ég ætlaði að giftast presti. Pólarnir voru tengdir og lögmál þeirra héldu
sambandinu föstu milli okkar. Það réðst
þannig með hjálp foreldra minna og fóstursystur, að ég sótti um námskeið við
Kennaraskólann í Reykjavík, þar sem voru kennt hússtjórnarfræði. Það nám var notadrjúgt, stóð fjóra mánuði,
frá febrúar til maíloka. Við vorum átta
eða tíu stöllur þarna í heimavist og sáum um mat fyrir bekkjaheimavistina.
Vorið við
Reykjavíkurtjörn var yndislegt. Fuglar
sungu í trjánum við Laufásveginn, aðrir fuglar sungu út um gluggana á húsunum
sem sneru að skólanum, ekki er mér grunlaust um að ýmsir karlfuglar hafi fylgst
nokkuð nákvæmlega með ferðum frá íbúðum okkar.
Svo mikið er víst að ég sá stundum tvo unga og granna fætur ljóshærðrar
og bláeygðar vinkonu minnar ganga í gleði sinni suður Laufásveginn – “Í undarlega
rauðum skóm”. Flestar okkar voru
harðtrúlofaðar, bak við tjöldin.
Karlmenn voru alger bannvara innan veggja skólans, nema einstaka viðutan
kennari, mig minnir að einn kenndi okkur bókfærslu. Heimilislífið var því átakalítið, einstaka
sinnum hoppuðum við þó léttfættar og ástfangnar yfir “múrinn” á kvöldin. Þegar góðir gestir komu í bæinn”.
Á námskeiðinu var
raunhæf og góð kennsla. Sigríður
Theodórsdóttir hét kennari okkar, frá Bægisá, hún lét okkur í té uppskriftir í
heila matreiðslubók. Þær hafa dugað vel
til þessa dags, og hennar ráð verið mér stoð og styrkur, sérsatlega sem eungir
ráðskonu við Núpskóla.
Haustið 1938
auglýsti Núpsskóli eftir ráðskonu, og þar sem mannsefnið var á Núpi, þótti mér
þetta álitlegt starf, en ekki var ég of viss um að valda því. En “vogum vinnur og vonum tapar”, og þetta
varð að ráði.
Við Eiríkur höfum
auvitað hug á að stofna heimili, en húsnæði var ekki til enn sem komi var. Að vísu hafði Eiríkur hafist handa um sumarið
– að byggja pestseturhús af eigin ramleik, fyrir eigið fé, auðvitað með það
fyrir augum, að ríki tæki svo við síðar, en þetta var enginn barnaleikur fyrir
fátækan námsmann og gat ekki tekist nema fyrir miskunnarlausa sjálfsafneitun og
harðfylgi, en hann átti hvot tvegga til – og beitti því.
Eins og ég hef
áður sagt þér, var húsnæði starfsfólks, þar á meðal herbergi ráðskonu, eldhús,
borðsalur og íbúð skólastjóra í eldra skólahúsinu, en herbergi kennara – í
þessu tilfelli Eiríks – í nýja húsinu á efstu hæð hjá heimavist pilta. Við
bjuggum því ekki í sama húsi, heldur vorum hvort á sínum vettvagni, og fór nú
fram sem horfði.
Ég og tvær
starfstúlkur undirbjuggum vetrarforðann.
Engin frystigeymsla var á staðnum, ýmist var matur súrsaður, soðinn
niður, saltaður eða reyktur, og var það mikil vinna að taka á móti öllu
kjötmeti og slátri og koma því í verkun – nema til söltunar, til þess var
ráðinn sérstakur maður.
Við sváfum oft
lítið, eldabuskurnar, en við vorum allar ungar, þær ýfið yngri en ég, það
jafnaði sig upp, lífsreynslan ekki miki, en góður vilji og viljaþrek kom á
móti. Mér féll þetta eldamennskustarf
vel. Það var stuttur tími frá því ég var
í skólanum og ég þekkti viðhorfin. Stundum var ég hræðilega þreytt, en mér lagiðst
alltaf eitthvað til hjálpar. Elskulegir
skólapiltar, sem vegna erfiðra samgangna urðu að taka ferð nokkru fyrir
skólabyrjun, komu stundum í eldhúsið og stóðu tímunum saman við handsnúna
hakkavél okkar til hjálpar. Það gerði þá
ekki að minni mönnum, sem betur fer, þeir hafa síðan gegnt ráðherrastörfum
talið fleiri peningaseðla en margur hefði þá spáð, þótt ekki hafi það verið
eigið fé. Ég á stundum erfitt með að
greina á milli, þegar ég hugsa um þetta fólk, hvort það voru skólasystkini mín,
eða hvort þetta voru nemendur eftir að ég varð ráðskona. Mér eru enn í dag kærir þessir gömlu félagar,
og ennþá liggja taugar æskuvináttu til þeirra, jafnvel þótt við höfum ekki sést
síðan á Núpi.
Gjörla vissum við
Eiríkur um áhuga fólks á kvonfangsmálum nýja prestsins og fljótlega skildist
okkur, að augljóslega væri best að hafa allt sitt á hreinu, þar með taldar
stuttar ferðir ráðskonu upp á kennaraherbergi.
Gifting var ákveðin 6. nóvember hjá séra Sigtryggi, hann ætlaði að messa
á Mýrum þann dag.
Ekki var
auðveldur undirbúningur af minni hálfu, en móðir mín reyndist forsjál, þá sem
fyrr, og sá fyrir efni í brúðarkjólinn, en frænka mín saumaði hann. Að öru leyti liði dagarnir hvur öðrum líkir
og við lögðum áherslu á að trufla ekki skólalífið.
En svo lagðist
skuggi veikinda yfir skólann. Ein
skólastúlkan, Guðrún uppeldisdóttir þeirra mæðgina á Kirkjubóli í Bjarnadal,
Guðmundar Inga, Halldórs og Bessabe móður þeirra, var lögst í rúmið sáþjáð af
verk eða “taki”, eins og það var kallað, og versnaði stöðugt. Læknir áleit það lungnabólgu. Við þeirri veiki voru ekki til mörg ráð áður
en fúkkalyfin komu til sögunnar, enda mörg dauðsföll af hennar völdum.
Við þeirri veiki
voru ekki til mörg ráð áður en fúkkalyfin komu til sögunnar, enda mörg
dauðsföll af hennar völdum. Við vorum
öll hrædd, kennarar og nemendur vöktu yfir sjúklingnum til skiptis og allt var
gert sem hugkvæmni og þekking leyfði, en samt elnaði stúlkunni sóttin.
Björn skólastjóri
ætlaði með fólkinu á tombólu laugardaginn 5. nóvember inn að Mýrum, um hálftíma
ferð tótgangandi. Hann var
uppboðshaldari sveitarinnar og ómissandi við þetta tækifæri, auk þess var venja
að nemendur fengju að fara í eina svona skemmtireisu á haustin, og varð það úr
í þetta sinn, þótt allir væru hálf niðurdregnir.
Mér hafði verið
hlíft við að vaka yfir sjúklingnum vegna eldhúsanna, og þótt við Eiríkur ætluðum
að gifta okkur næsta dag, hvarf sú athfön alveg í skuggann af þeirri staðreynd,
að nú var mín þörf við sjúkrabeðinn.
Stúlka var sárveik, alltaf með óráði og henni var afskaplega heitt. Ég hafði heyrt, að umskipti yrðu oft hjá
lungnabólgusúklingum á sjötta eða sjöunda sólarhring, þá færi þeim annað hvort
að létta, eða þeir dæju. Ég bjóst við að
Guðrún mundi deyja þessa nótt og að hvur þjáningastuna væri hennar
síðasta. Við vorum þarna tvær í litlu
herbergi undir súð, út um tveggja rúðu gluggann sást krapahríðin og smá
ljósbrot frá útiperunni. Mér var þetta
haustmyrkur ekkert ókunnugt, en það varð kannski ennþá dekkra við þessar
aðstæður og gekk nærri kjarkinum. En
amma Kristín hafði kennt mér á sínum þjáningastundum að biðja fyrir þeim sem
ættu bágt, og það varð nú eina stoðin þarna við sjúkrabeðinn.
Þegar leið á
nóttina fór fólkið að koma af samkomunni, en ég sat áfram yfir
sjúklingnum. Líðan hennar var óbreytt,
og um morguninn var leitað til Hólmfríðar kennara að sitja hjá henni, svo ég
gæti sinnt sunnudagsmat fyrir fólkið mitt.
Síðan héldum við
Eiríkur af stað að Mýrum og bárum töskur okkar.
Vígslan fór fram og okkur var haldin veisla af söfnuði Mýrarkirkju. Það var hlýlegt og elskulegt og eitthvað var
þar líka talað yfir okkur. Þarna hafði
nýi presturinn haft á burt með sér “litlu ferjustelpuna”, og sagt var að sést
hefðu rakir augnkrókar eldri manna, þegar við gengum fram kirkjugólfið. Heim var svo haldið og þar biðu okkar þær
gleðifréttir, að Guðrún væri miklu betri.
Hólmfríður kennari sagði mér síðar frá því, að líðan hennar hefði verið
óbreytt fram yfir hádegi, en þá varð breyting.
Um það leyti sem messan fór fram á Mýrum, hefði Guðrún risið upp úr
óráðinu og sagt: “Nú er verið að gifta
þau, ég sé þau fyrir alatarinu”. Ótti
greip Hólmfríði, hún hélt að umskiptin yrðu til annars heims, en það var batinn
sem var að koma. Samt sem áður þurfti
stúlkan mikla umönnun, og ég var svo hjá henni aftur og hef víst fljótlega
farið að dotta. Þannig leið
brúðkaupsnóttin, og hefur sjálfsagt margur hrist höfuðið yfir því. Fyrir mestu þótti okkur batinn, og þótt
Guðrún yrði að hverfa frá námi eftir þetta áfall, komst hún til heilsu og lifir
enn.
Leið svo tíminn
fram til 21. nóvember. Þá gerðist það
tíðinda, að rafstöðin okkar bilaði, það var rafallinn sem fór, og þurfti að
senda hann til Reykjavikur eða jafnvel til Englands, kannski að kaupa nýjan
rafal. Okkur var sagt að það tæki mánuð
að koma þessu í lag. Nú var allt í
kaldakoli, í orðsins fyllstu merkingu.
Miðstöðvar voru þó í báðum húsunum, kolakyntar, og pínulítil kolaeldavél
í eldhúsinu, tveggja hólfa, komust á hana tveir pottar í senn, og ein lítil
bökunarhella fylgdi. Hægt var að baka á
henni eitt tveggja punda brauð í senn, 9 smákökur, tvær vínarbrauðslengur og
tvær formkökur. Venjulega varð að kynda
svo mikið vegna suðu matar, að rifa þurfti að vera milli ofna og hurðar, svo
allt brynni ekki. Í dag er mér ekki
alveg ljós tæknileg framkvæmd þessa bakstur, en hitt man ég, að það mátti
aldrei af ofninum líta, né annarri eldamennsku.
Til ljósa í
skólanum voru “aladin-lampar”. Þeir voru
bornir á milli þeirra staða, þar sem mestri birtu var þörf, alls staðar annars
staðar voru olíulampar og kerti, og var mikið lán að ekki hlaust eldsvoði af.
Í mötuneytinu
voru 50-60 manns. Mér var það mikið
metnaðarmál, að þurfa ekki að breyta matargerðinni, krakkarnir voru ánægð með
fæðið, en það var harðsótt að koma því í verk.
Heita mátti, að eldavélin væri rauðglóandi allan sólarhringinn. Þess vegna lagði ég mig oft á eldhúsbekkinn
fram eftir nóttu, meðan kjöt var að soðna eða kaka að bakast. Stúlkurnar höfðu nóg að gera á daginn. Þær sinntu einnig hriðingu á fatnaði og
herbergjum kennara, leiðbeindu skólapiltum með þvotta, auk þess þurftum við að
vinna öll “búrmanns” verk, brytja niður saltfisk og kjöt, og sjá um að koma
fiski af trönum, eða grafa hann upp úr sköflum fyrir næsta dag. Ýmsir erfiðleikar voru á aðdráttum. Þótt vel væri séð fyrir kjöti og sláturmat á
haustin, notaður siginn og saltaður fiskur, með því sem náðist af nýjum fiski,
og mjölvara geymd í skemmu niðri við sjó, var oft mjög erfitt að ná i
mjólk. Bændur af næstu bæjum fluttu
sjálfir til okkar mjólkina, en það var ekki alltaf nóg. Einhvurn tíma vetrar var fengin mjólk frá
Önundarfirði, mættust þá mjólkurpóstarnir á miðri Gemlufallsheiði. Notaðir voru reiðingshestar fyrir brúsana, en
skólapiltar fóru þessar ferðir gangandi, og voru veður oft misjöfn, og tók
ferðin fjórar til fimm klukkustundir. Húsbóndi
heimavistar annaðist niðurröðun í þesar ferðir.
Garðávextir voru geymdir í jarðhúsi, sem grafið var inn í hól norðan við
eldra skólahúsið. Hleri á hjörum var
fyrir hurð, þungur mjög, tröppur niður á gólfið og stórar stíur fyrir innan,
loftræstingartúða var á þaki, og minnir mig að bitar væru í loftinu og reft
yfir, síðan þakið yfir að utan með mörgum lögum af torfi.
Nú átti
húsbóndinn að láta pilta bera inn karatöflur í tunnu, sem stóð í geymslunni
okkar. Einn morgun í rafmagnsleysinu,
vaknaði ég að venju rétt fyrir kl. sex, til þess að kveikja upp og setja
kartöflurnar yfir. Það var öskubylur,
eins og hann gat verstur orðið. Ég
kveikti á kerti, fór fram á gang, síðan fram að útidyrum, en þaðan lágu tröppur
niður í eldhúsið. Fennt hafði inn með
útihurðinni og svo var gusturinn ,mikill, að strax slokknaði á kertinu, ég varð
að þreifa mig áfram til að komast niður rennblautar tröpurnar. Tíu línu lampi var í eldhúsinu og gekk mér
vel að finna hann og einnig að kveikja upp í vélinni, en þegar kom að
kartöflutunnunni, var hún galtóm. Ekki
fannst mér sæma að vekja skólastjórann, sem bjó á loftinu, og stúlkunum mínum
vildi ég ekki etja út í þetta, allt var læst og lokað út á piltavist. Ég bjó mig til að fara út, tók bara það sem
hendi var næst af útifatnaði, kannski var það mest af skólatjóranum, í það
minnsta stígvélin, en ég mátti öngvan tíma missa til að leita að öðru. Svo náði ég mér í þvottabala undir
kartöflurnar, því að ekki nægði minna ílát, og svo skólflu til að moka frá
hleranum á jarðhúsinu.
Þegar út kom sá
ég ekki neitt. Ég þreifaði mig áfram
meðfram húsveggnum, en gekk fljótlega í svo stóran skafl, að ég komst hvorki
aftur á bak né áfram. Þá var að
skríða. En hvar átti ég að byrja að
moka? Líklega hefur sjötta
skilningarvitið vísað mér leið, því að loks fann ég hlerann, gat opnað, og svo
lagðist hann aftur að baki mér i rokinu.
Nú stóð ég þarna
niðri í jarðhúsinu, ljóslaus með öllu og vel minnug þess, að strákarnir höfðu
oft kvartað undan músaganginum þarna. En
greyin litlu hafa víst flúið sem fætur toguðu við þessa óvæntu heimsókn, því að
engin þeirra varð fyrir mér, og einhvurn veginn hálffyllti ég balann og
staulaðist með hann upp tröppurnar og út.
Þegar ég komst
svo aftur inn í eldhúsið mitt, logaði glatt í eldavélinni og birtan af litla
lampanum ljómaði á móti mér, svo að við lá, að ég fengi ofbirtu í augun.
Sérhvur þegn skólaheimilisins bar sína byrði möglunarlaust
þetta ljósleysis tímabil. Það var
erfitt, en það efldi samhug og drenglyndi að lyfta þessu grettistaki.
Eitt
laugardagskvöld seint í nóvember komu kennarar og nemendur saman í borðsalnum
til þess að drekka kvöldkaffið að venju.
Það var kallað á okkur eldhússtúlkurnar og Björn skólastjóri bauð okkur
til sætis, það stóð greinilega eitthvað til.
Hann afhenti okkur nýgiftu hjónunum húsklukku að gjöf, með silfurskildi
áletruðum nöfnum okkar og hamingjuóskum frá kennurum og nemendum
Núpsskóla. Þarna í hálfrökkrinu læddist
að mér viðkvæmnin, sem annars var hálf niðurbarin, líklega hef ég þá sjálf
lofað mér því, að bregðast ekki trausti þessa fólks, sem sat þarna í
kringumokkur. Undir þvað virtist nýja
klukkan taka: “hún fór að slá með
silfurskærum hljómi”.